Hún mamma mín á afmæli í dag.

Mamma er sjötíu og þriggja ára í dag. Til hamingju með daginn mamma mín. Þessum degi fagnar hún auðvitað í fæðingarbæ sínum Reykjavík. Ekki það að hún eigi heima þar en hún er  hjá gamla sínum. Allt er til betri vegar þar hann útskrifast sennilega á morgunn. Jibbí. Helgin var pínu tregafull með hann. Hann fékk hita sem menn eru hræddir við eftir svona aðgerðir því hiti getur verið ávísun á ígerð eða sýkingu. Sem betur fer var ekki um neitt svoleiðis að ræða og þegar ég talaði við hann í gærkveldi var hann mikið hressari en hann hefur verið.

Helginni eyddi ég að mestu í jólaundirbúning hef aldrei áður verið búin að skreyta svona mikið um miðjan desember en ákvað að vera snemma í þessu þetta árið. Nokkrar smákökur eru komnar í bauka og svo er búið að skrifa hluta jólakorta og svo og svo. Það sem toppaði samt var að setjast niður og mála. Nú verður næstu kvöldum eytt í það. Ég elska að mála hvort heldur er á kerti, keramik eða bara eitthvað annaðInLove Við fengum líka góða gesti frá Húsavík á laugardaginn, alltaf gaman þegar góðir vinir rekast inn.

Ég talaði við stelpurnar mínar í Reykjavík sú stærsta (dóttirin) tjáði mér að tengdasonurinn fer í brjósklos aðgerð næsta föstudag sem er þá 18. desember. Þannig að þá verður hann óvirkur í tiltekt og umönnun dætranna um jólin. Ekki gaman það. En svona er þetta bara. Vonandi verða þá amma og afi til einhvers.

Eigið ljúfan dag, það ætla ég að geraGrin


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birna Dúadóttir

Innilega til hamingju með mömmu þína Skilaðu kveðju til hennar frá mér

Birna Dúadóttir, 14.12.2009 kl. 09:21

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Til hamingju með mömmu þína

Jónína Dúadóttir, 14.12.2009 kl. 14:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband