Lokaritgerð

Ég setti mér það markmið að koma fræðilegahluta lokaritgerðarinar minnar til leiðbeinanda míns í dag, það dregst til morguns þar sem ég sendi hann ekki án þess að búið sé að lesa textann yfir fyrir mig. Ég á tvær góðar að til þess þ.e. bæði yndislega systur og dótturSmile heppin ég því þær eru báðar betri í stafsetningu en ég og svo sjá þær auðvitað málfarsvillur sem ég er orðin samdauna þar sem ég skrifa sjálf. Annars er þetta búin að vera góður dagur eins og venjulega ég fór á fætur um 9 í morgunn og var byrjuð að skrifa fyrir 10 svo kom Tobba og hjálpaði mér heilmikið í Norskum þýðingum Það munar ekki smá að fá einhvern til að leiðbeina sér þegar maður er að lesa á tungumáli sem maður hefur aldrei lært. Um kaffileitið fórum við skötuhjúin svo út að ganga (það er nauðsynlegt þegar maður hangir í tölvunni allan daginn). Eftir útiveruna tóku svo skrifin við á ný og er þeim ný lokið þannig að nú bíð ég bara spennt eftir að sjá hversu mikið af villum ég þarf að laga svo ég geti sent þetta áfram. Á morgunn er skóli og svo er á dagskrá að fara niður í vinnu og ath. hvernig ég geri spurningarlista og hvort ég næ mér í heimildir í áframhaldandi skrif, því það þýðir ekki að stoppa neitt núna. Verkinu þarf að ljúka fyrir 30 apríl. Þannig að það er ekkert hangs í boði. Eins þarf ég að heyra í mömmu og pabba á morgunn hef áhyggjur af því að mamma sé enn veik á Kanarý. En nú er kominn tími til að bjóða góða nótt 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hún er SVO sæt, hún Aðalheiður Karen, svo finnst mér nafnið hennar mjög fallegt

Kristbjörg Clausen (IP-tala skráð) 12.3.2007 kl. 20:28

2 Smámynd: Aðalheiður Magnúsdóttir

Hún er yndisleg þessi stubba mín og algjört ömmu skott

Aðalheiður Magnúsdóttir, 12.3.2007 kl. 23:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband