Síðasta vika

Þá er síðasti dagur þessarar viku runnin upp og markmiðum vikunar ekki náð. En ég var búin að setja mér það markmið að skila fræðilega hluta lokaritgerðarinar í dag. Þó nokkuð í land þar. En þetta hefst allt á endanum. Ég er bara snillingur í að gera eitthvað annað en ég ættlaði mér t.d. þá fór ég suður til Grindavíkur á síðasta mánudag og kom heim aftur á fimmtudagskvöldið. Það var nú yndislegt að vera með systarbörn mín og geta hjálpað til. Ólöf Rún var veik og það er ekki mín sterka hlið að horfa á veikt barn og geta ekki mikið hjálpað ( held að ég geti aldrei þakkað það nógsamlega hversu hraust mín börn voru og eru). En hvað um það ég fékk líka tækifæri á að hitta nöfnu mína og dóttur í smá tíma áður en ég fór í flug og það leiðist mér aldrei:) Sótti Aðalheiði Karen í leikskólan hún var að leika sér að hlaupa þegar ég kom en hún snér við á punktinum og flaug upp um hálsinn á ömmu sinni. Auðvitað vildi hún svo fara í stóru flugvélina með mér:) Geiri minn sótti mig svo á flugvöllinn og bauð mér út að borða alltaf jafn sætur í sér þessi elska:). Í gær var ég svo hér við tölvuna bæði að skrifa í ritgerðini og leita meiri heimilda. Í dag er svo meiningin að reyna að ljúka þessum hluta svo ég geti byrjað á þeim næsta á morgunn.  Af mínu fólki er það nú helst að frétta að mamma og pabbi fóru til Kanarý á þriðjudaginn en þá var mamma orðin hálf lasinn. Á miðvikudag mátti pabbi fá lækni til hennar því hún var fárveik, smá samviskubit yfir að hafa ekki hvatt pabba til að fresta ferðini um viku en hvað um það. Hún er öll að hressast kannski komin í sólbað núna:)  Guðrún og Óli komu úr sinni siglingu á fimmtudag þannig að það eru allir á landinu nema m og p. Jæja ég ætla ekki að bulla meira núna það er kominn tími á að setjast yfir lokaritgerðina.

Farið vel með ykkur þar til næstSmile

Heiða


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband